Jarðskjálftabylgjur
- Jarðskjálftabylgjur skiptast í tvo aðalflokka. Annars vegar eru svokallaðar rúmbylgjur sem skiptast aftur í P-bylgjur og S-bylgjur. Báðar þessar tegundir ferðast um allt fast efni jarðar og P-bylgjur ferðast líka um vökva svo sem bergkviku og vatn. Hinn meginflokkurinn nefnist yfirborðsbylgjur. Þær halda sig að mestu við yfirborð jarðar og myndast út frá hinum bylgjunum en koma ekki frá sjálfum upptökum skjálftans. Tegundir yfirborðsbylgna nefnast Love-bylgjur og Rayleigh-bylgjur. Hraði bylgna af mismunandi tegundum í sama efni er mjög misjafnt en þær geta breyst í hver aðra við skil á milli jarðlaga.